LS leitar að framkvæmdastjóra

Landssamband smábátaeigenda (LS) auglýsir eftir nýjum framkvæmdastjóra til að stýra daglegum rekstri samtakanna og annast hagsmunagæslu fyrir smábátaeigendur um land allt. Í því felst væntanlega að Örn Pálsson lætur senn af störfum.
Samkvæmt auglýsingunni er leitað að dugmiklum og drífandi einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf. Framkvæmdastjórinn mun bera ábyrgð á rekstri félagsins, sinna samskiptum við stjórn, landshlutafélög og félagsmenn og sjá um miðlun upplýsinga á vettvangi samtakanna, meðal annars á samfélagsmiðlum og vefsíðunni smabatar.is.
Einnig felst í starfinu hagsmunagæsla fyrir smábátaeigendur, þar á meðal í málum sem snúa að veiðirétti, réttindum og öryggismálum. Þá er gert ráð fyrir greiningu og úrvinnslu gagna frá stjórnvöldum og stofnunum á borð við Hafrannsóknastofnun og Fiskistofu.
Gerðar eru kröfur um að umsækjendur búi yfir góðri aðlögunarhæfni, samskipta- og samstarfshæfni, þekkingu á sjávarútvegi og lagaumhverfi hans, reynslu af stjórnun og rekstri auk frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun sem nýtist í starfi og góða tölvukunnáttu.
LS eru hagsmunasamtök um 800 smábátaeigenda á Íslandi og hafa um áratugaskeið unnið að því að verja réttindi þeirra og styrkja stöðu smábátaútgerðar. Í auglýsingunni kemur fram að samtökin hafi gegnt lykilhlutverki í mótun starfsumhverfis greinarinnar og barist fyrir sanngjörnum aðgangi að auðlindum sjávar.
Umsóknir um starfið skulu sendar á netfangið ls@smabatar.is fyrir 18. júní næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

