Neytendur geti rakið ferðalag fisksins

Fyrr í vor fékk verkefnið Sea Thru hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en um er að ræða rafrænt rekjanleikakerfi fyrir sjávarafurðir. Neytandi getur þannig rakið ferðalag sjávarafurða í gegnum alla vinnslukeðjuna, þ.e. frá upphafi og þar til fullunnin vara kemur í hendur neytandans.
„Hugmyndin kviknaði hjá mér þegar ég var á ferðalagi um Evrópu í janúar 2023 þar sem ég var að skoða fiskvinnslur og tók eftir að aðeins er getið um uppruna fisks en lítið sem ekkert um áframvinnslu hans, t.d. hráefnis sem kemur frá Íslandi,“ segir Arna Bryndís Baldvins McClure sem fékk hugmyndina að kerfinu og leiðir verkefnið.
Í viðtali í nýju tölublaði Sóknarfæris segir Arna markmiðið vera að gera neytendum kleift að skanna QR-kóða á umbúðum sjávarafurða og fá þannig upplýsingar um uppruna þeirra og allt ferðalag vörunnar. Hún bendir á að kröfur neytenda um upplýsingar og rekjanleika fari stöðugt vaxandi og að sífellt meiri áhersla sé lögð á rafrænan rekjanleika á alþjóðamörkuðum.
Í greininni er einnig fjallað um þróun verkefnisins, samstarf við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og þá möguleika sem felast í því að tengja saman upplýsingar úr allri virðiskeðju sjávarafurða. Arna segir markmiðið meðal annars að styrkja stöðu framleiðenda sem leggja áherslu á gæði og gagnsæi, auk þess að hjálpa neytendum að taka upplýstar ákvarðanir um matvælakaup.

