Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði um 35 tonnum af karfa í Hafnarfirði á föstudag að lokinni stuttri veiðiferð. Um var að ræða fyrstu veiðiferð skipsins eftir að lagfæringum á spili þess lauk.
Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra fékkst aflinn á Wilson’s Corner og á svokölluðum 55 mílum.
„Hér um borð eru allir brattir og ánægðir með að hefja veiðar að loknu dálitlu hléi. Ég reikna með að við förum að fikra okkur austur eftir fljótlega,“ segir Hjálmar.
Birtingur hélt aftur til veiða að löndun lokinni og er stefnt að því að færa veiðarnar austar á miðin á næstu dögum.