Guðmundur í Brimi kaupir Þórsnes

Deila:

Félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar framkvæmdastjóra Brims hefur keypt allt hlutafé í útgerðarfyrirtækinu Þórsnesi í Stykkishólmi. Frá þessu er greint á mbl.is.

Haft er eftir Eggerti Halldórssyni framkvæmdastjóra Þórsness að starfsemin verði óbreytt eftir eigendaskiptin. Hann mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra.

Með kaupunum fylgja útgerð, fiskvinnsla, skip, búnaður og veiðiheimildir. Hjá Þórsnesi starfa á bilinu 50 til 60 manns yfir árið.

Deila: