Ágæt veiði hjá línuskipum Vísis

Deila:

Línuskip Vísis í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í upphafi vikunnar eftir ágætar veiðiferðir þar sem áherslan var einkum lögð á keiluveiðar. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Páll Jónsson GK landaði um 100 tonnum í gær. Að sögn Benedikts Jónssonar skipstjóra var rúmlega helmingur aflans keila en næstmest var af löngu.

„Rúmlega helmingur aflans var keila en síðan var mest af löngu. Alls voru teknar fimm lagnir í túrnum. Fyrst voru teknar tvær lagnir á Pínulitla banka, síðan ein á Fylkishóli og loks tvær á Sigurfaragrunni. Miðað við árstíma er þetta hinn þokkalegasti afli,“ segir Benedikt á vef Síldarvinnslunnar.

Sighvatur GK landaði síðan í morgun með 85–90 tonna afla. Þar var keila einnig uppistaðan í aflanum ásamt löngu.

„Við vorum með 85 – 90 tonn í túrnum og það var langmest keila og síðan langa. Teknar voru sex lagnir. Byrjað var á Eyrinni, sem er 70 – 80 mílur suðvestur af Grindavík, þá var tekin lögn sunnan við Fjöllin og loks restað á Fjöllunum. Við erum ágætlega sáttir við þennan árangur,“ segir Óli Björn Björgvinsson skipstjóri.

Páll Jónsson hélt aftur til veiða í gærkvöldi og Sighvatur var væntanlegur úr höfn í kvöld.

Deila: