Kaldbakur í árlegu viðhaldi í Slippnum

Deila:

Togarinn Kaldbakur EA 1, bolfisktogari Samherja, hefur verið í flotkví Slippsins á Akureyri undanfarna daga þar sem fram fer umfangsmikið viðhald og ástandsskoðun á skipinu.

Að sögn Jóhanns Freys Jónssonar á útgerðarsviði Samherja er um að ræða heildaryfirferð á skipinu. Meðal annars er skrokkurinn málaður eftir þörfum, farið yfir ástand skrúfu og stýris og framkvæmd svokölluð fimm ára DNV-skoðun sem metur heildarástand skipsins samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Jóhann Freyr segir sumarið hentugan tíma fyrir slík verkefni, meðal annars vegna sumarleyfa í fiskvinnslum félagsins. Gert er ráð fyrir að Kaldbakur haldi aftur til veiða í lok mánaðarins.

Hann segir undirbúning lykilatriði í verkefnum sem þessum og hrósar bæði Slippnum og öðrum verktökum sem koma að verkinu fyrir góða þjónustu.

„Slippurinn hefur alla tíð veitt okkur frábæra þjónustu og sömu sögu er að segja um aðra verktaka sem koma að verkefni sem þessu, enda er þetta töluverð teymisvinna,“ segir Jóhann Freyr á vef Samherja.

Þar kemur einnig fram að áhöfn Kaldbaks taki virkan þátt í verkefninu og að vonir standi til að allt gangi samkvæmt áætlun svo skipið geti hafið veiðar á ný áður en langt um líður.

Deila: