Smábátaeigendur minntir á rás 9

Landssamband smábátaeigenda hefur sent smábátaeigendum orðsendingu þar sem þeir eru minntir á að nota rás 9 þegar þeir kalla sig út á sjó.
Í tilkynningu á vef Landssambands smábátaeigenda kemur fram að töluvert hafi borið á því að skipstjórar kalli sig út á rás 16 í stað rásar 9.
Bent er á að rás 16 sé neyðarrás og sé eingöngu ætluð fyrir neyðarköll, brýn boð og tilkall. Önnur notkun á rásinni valdi óþörfu álagi á Vaktstöð siglinga.
Landssambandið hvetur því skipstjórnarmenn til að fylgja reglum um notkun talstöðvarrása og kalla sig út á rás 9 en ekki á rás 16.

