Birtingur landaði 50 tonnum

Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að ísfisktogarinn Birtingur NK hafi landað liðlega 50 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Uppistaða aflans var ýsa og þorskur.
Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri segir að veiðiferðin hafi hafist í Hafnarfirði og að haldið hafi verið austur með Suðurlandinu.
„Við reyndum fyrir okkur á nokkrum stöðum á leiðinni en veiddum mest á Skrúðsgrunni og í Litladýpi. Það hefði mátt ganga heldur betur að veiða framan af en það kroppaðist þokkalega í restina á túrnum,“ segir Hjálmar Ólafur.
Hann segir veðrið hafa verið gott nær allan túrinn.
„Það var ágætt veður allan túrinn nema rétt í restina en Birtingur er fantasjóskip og fer vel með mannskapinn þó blási dálítið.“
Þetta var í fyrsta sinn sem núverandi áhöfn skipsins landar í heimahöfn í Neskaupstað. Að sögn Hjálmars Ólafs hefur ekki verið ákveðið hvar næst verður haldið til veiða.
„Á þessum árstíma hefur oft fiskast vel hérna fyrir austan og við sjáum til hvernig þetta verður nú,“ segir hann.



