Fiskistofa verður hluti af nýrri Stofnun atvinnuveganna

Deila:

Fiskistofa verður hluti af nýrri Stofnun atvinnuveganna frá og með 1. janúar 2027 samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Alþingi samþykkti 19. júní frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um stofnunina sem mun taka við verkefnum Fiskistofu, Matvælastofnunar og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Fyrir sjávarútveginn felur breytingin í sér að Fiskistofa verður lögð niður sem sjálfstæð stofnun og verkefni hennar færð undir hina nýju stofnun. Jafnframt flyst eftirlit með matvælum frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til Stofnunar atvinnuveganna og verður allt opinbert eftirlit með matvælum þá á vegum sömu stofnunar.

Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra að með breytingunni skapist tækifæri til að styrkja starfsemina enn frekar. „Með þessari nýju stofnun skapast tækifæri til að efla enn frekar starfsstöðvar sem eftirsóknarverðan vinnustað með öfluga fagþekkingu. Þannig verður til öflugt þekkingarsamfélag hjá stofnuninni með fjölbreyttum tækifærum til þróunar í starfi,“ segir ráðherra.

Lögð verður áhersla á að halda í þá staðbundnu þekkingu sem byggst hefur upp hjá stofnununum. Kveðið er á um að starfsfólk verði staðsett á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.

Með gildistöku laganna verða stöður fiskistofustjóra, forstjóra Matvælastofnunar, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis lögð niður. Þá verða öll störf hjá Fiskistofu, Matvælastofnun og Verðlagsstofu skiptaverðs lögð niður en starfsfólk stofnananna fær forgangsrétt að störfum hjá Stofnun atvinnuveganna.

Embætti forstjóra hinnar nýju stofnunar verður auglýst á næstu dögum og er gert ráð fyrir að viðkomandi taki til starfa í haust. Samhliða verða til 20 ný stöðugildi vegna þeirra verkefna sem flytjast frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna.

„Það eru virkilega spennandi tímar fram undan við að koma nýrri stofnun á laggirnar. Ég er sannfærð um að hér sé að verða til öflug stofnun með sterkt faglegt bakland og fjölbreytt tækifæri fyrir starfsfólk,“ segir Hanna Katrín í tilkynningu ráðuneytisins.

Deila: