Keilan í aðalhlutverki hjá línuskipum Vísis

Línuskip Vísis í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu samanlagt um 170 tonnum af fiski í Grindavík í gær og í morgun. Meginhluti aflans var keila og langa, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Páll Jónsson GK landaði í gær um 85 tonnum eftir veiðiferð á Fjöllum suðvestur af Reykjanesi. Andrés Óskarsson sem annast aflastýringu hjá Vísi segir að auk keilu og löngu hafi aflinn meðal annars innihaldið karfa, þorsk og keilubróður.
Sighvatur GK landaði síðan um 85 tonnum í morgun. Óli Björn Björgvinsson skipstjóri segir að aflinn hafi að mestu verið keila og langa, auk um tíu tonna af aldamótakarfa.
„Aflinn er langmest keila og langa en við erum líka með um 10 tonn af aldamótakarfa. Við hófum veiðar í kantinum sunnan við Melsekk og tókum þar þrjár lagnir. Síðan voru teknar tvær lagnir á Litla Dímon og á Litlabanka og þar fékkst risastór aldamótakarfi. Við enduðum síðan í gær á Þjóðverjahólum. Túrinn gekk vel og það var bongóblíða mest allan tímann,“ segir Óli Björn í samtali sem birt er á vef Síldarvinnslunnar.
Bæði skipin hafa því skilað góðum afla að landi þar sem keilan hefur verið uppistaðan í veiðunum síðustu daga.


