Laxey lýkur 6,7 milljarða hlutafjárúboði

Landeldisfyrirtækið Laxey hefur lokið 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði til að fjármagna næsta áfanga í uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Samkvæmt tilkynningunni var eftirspurn eftir hlutum í útboðinu verulega umfram framboð. Upphaflega var stefnt að því að afla 5,8 milljarða króna í nýju hlutafé en niðurstaðan varð 6,7 milljarðar. Langstærstur hluti fjármögnunarinnar kom frá núverandi hluthöfum en jafnframt bættust nýir fjárfestar í hópinn.
Frá stofnun hefur Laxey nú aflað um 29 milljarða króna í hlutafé. Samhliða hlutafjárútboðinu hefur félagið undirritað skuldbindandi skilmálablað vegna sambankaláns undir forystu DNB Carnegie. Að lánveitingunni koma DNB, Rabobank, Arion banki og Eksfin.
Fjármagnið verður nýtt til að fjármagna þriðja áfanga í uppbyggingu Laxeyjar, endurfjármagna núverandi skuldir og fjármagna byggingu fyrsta áfanga nýrrar seiðastöðvar félagsins.
Hin nýja seiðastöð verður í fyrstu hönnuð fyrir framleiðslu á fimm milljónum seiða á ári en gert er ráð fyrir að hægt verði að stækka hana þannig að framleiðslugetan nái allt að 15 milljónum seiða árlega.
Í tilkynningu Laxeyjar segir að fjármögnunin endurspegli jafnframt traust fjárfesta og lánveitenda á stöðu félagsins sem öflugs landeldisfyrirtækis á alþjóðavettvangi. Gert er ráð fyrir að fjármögnunarferlinu verði lokið fyrir lok september.

