Aflvana smábátar dregnir í land

Deila:

Áhafnir björgunarskipanna Þórs í Vestmannaeyjum og Sigurvins á Siglufirði voru kallaðar út í dag vegna aflvana fiskibáta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Fyrra útkallið barst um klukkan 10 í morgun þegar fiskibátur varð aflvana við Hellisey undan Vestmannaeyjum. Einn skipverji var um borð og taldi hann enga yfirvofandi hættu á ferðum.

Áhöfn björgunarskipsins Þórs brást skjótt við og lagði úr höfn aðeins um fimm mínútum eftir að útkallið barst. Skipið var komið að fiskibátnum um tuttugu mínútum síðar og innan við þremur korterum frá útkalli var búið að koma dráttartaug á milli skipanna.

Þór dró bátinn til hafnar og var hann kominn með hann að bryggju í Klettsvík rétt fyrir hádegi. Um tuttugu mínútur í eitt var björgunarskipið aftur komið að bryggju og tilbúið til næsta verkefnis.

Síðar um daginn, um klukkan tvö, var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins á Siglufirði kölluð út vegna annars aflvana fiskibáts sem var staddur norður af Straumnesi. Þegar tilkynningin var send út var Sigurvin á leið á vettvang.

Myndin er í eigu Eyjafrétta.

Deila: