Aukning í norsk-íslenskri síld

Deila:

Heildarbergmálsvísitala fullorðinnar norsk-íslenskrar síldar mældist 4,2 milljónir tonna í alþjóðlegum uppsjávarleiðangri í Noregshafi og aðliggjandi hafsvæðum í maí. Það er 16% aukning frá árinu 2025 þegar vísitalan var 3,6 milljónir tonna. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.

Norsk-íslensk síld fannst víða um leiðangurssvæðið og mest bar á fjögurra, fimm og tíu ára fiski, það er árgöngum frá 2022, 2021 og 2016. Árgangurinn frá 2022 var í mestum fjölda en árgangurinn frá 2021 í mestum lífmassa.

Magn fjögurra ára fisks, 2022-árgangsins, var metið um 65% yfir meðaltali áranna 1996 til 2025 og magn fimm ára fisks um 19% yfir meðaltali. Að mati Hafrannsóknastofnunar er of snemmt að segja til um endanlegan styrk þessara árganga en niðurstöðurnar benda engu að síður til aukinnar nýliðunar inn í stofninn.

Í leiðangrinum kom einnig fram að mikið var af eins og tveggja ára kolmunna í sögulegu samhengi. Magn eins árs fisks, 2025-árgangsins, var metið um 230% yfir meðaltali áranna 2008 til 2025 og magn tveggja ára fisks um 170% yfir meðaltali.

Litlar breytingar mældust á þéttleika átu á rannsóknarsvæðinu frá fyrra ári, að undanskilinni aukningu á vestari hluta djúpsvæðanna. Þá var hitastig sjávar á 50 til 200 metra dýpi almennt yfir langtímameðaltali áranna 1995 til 2021.

Niðurstöðurnar verða meðal annars notaðar á fundi Alþjóða Hafrannsóknaráðsins, ICES, í lok ágúst þar sem unnið verður að stofnstærðarmati og ráðgjöf fyrir uppsjávarfiskistofna.

Deila: