Birtingur með 60 tonn eftir veiðar fyrir Austurlandi

Deila:

Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði um 60 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær eftir veiðiferð fyrir Austurlandi. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Að sögn Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra var aflinn að mestu þorskur en einnig ýsa og karfi.

„Þessi 60 tonn sem við vorum með voru mest þorskur og síðan helst ýsa og karfi. Við hófum túrinn á Gerpisflakinu en vorum síðan mest úti á Þórsbanka og Verkamannabanka. Staðreyndin er sú að það mætti vera meira af fiski á ferðinni hér fyrir austan land, en oft hefur aflast vel á miðum hér eystra á þessum árstíma. Við leituðum talsvert en það var engin kraftveiði að undanskildu einu holi. Veður var fínt allan túrinn og ekki hægt að kvarta undan neinu í þeim efnum,“ segir Hjálmar á vef Síldarvinnslunnar.

Birtingur hélt aftur til veiða síðdegis í gær að lokinni löndun.

Deila: