Bandero mögulega dregið til hafnar

Gripið verður til aðgerða ef áhöfn skipsins Bandero reynir að hindra lögmætar hvalveiðar við Ísland. Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við RÚV í kvöld.
Ráðherrann lagði á ríkisstjórnarfundi fram minnisblað um viðbúnað Landhelgisgæslunnar vegna komu skips Captain Paul Watson Foundation til landsins. Bandero kom inn í íslenska efnahagslögsögu um helgina og hefur varðskipið Þór fylgt skipinu eftir frá sunnudagskvöldi.
Þorbjörg segir málið fyrst og fremst snúast um öryggi þeirra sem eru á sjó.
„Fyrir mér er þetta ekki mál sem snýst um hvalveiðar eða afstöðu til hvalveiða. Þetta er mál sem snýst um öryggi þeirra sjómanna sem eru hér á veiðum og auðvitað líka áhafnar hins erlenda skips,“ sagði ráðherrann.
Hún áréttaði að hvalveiðar væru löglegar samkvæmt íslenskum lögum og að hlutverk stjórnvalda og Landhelgisgæslunnar væri að tryggja öryggi sjófarenda.
Þá sagði ráðherrann að stjórnvöld hefðu fleiri en einn valkost ef ástandið harðnaði. Meðal þeirra sviðsmynda sem væru til skoðunar væri að draga Bandero til hafnar ef tilefni gæfi til.