Bergey aftur með fullfermi

Deila:

Ísfisktogarinn Bergey VE hefur landað tveimur fullfermum í Vestmannaeyjum á rúmri viku. Skipið landaði fyrst fullfermi mánudaginn 22. júní og síðan aftur í gær eftir stutta veiðiferð. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Að sögn Jóns Valgeirssonar skipstjóra hélt Bergey ekki aftur til veiða fyrr en á fimmtudeginum eftir fyrri löndun. Í fyrri túrnum var veitt á Víkinni, við Pétursey og einnig á Ingólfshöfða. Í seinni túrnum voru veiðarnar eingöngu stundaðar á Ingólfshöfða.

„Aflinn var blandaður; þorskur, ýsa, ufsi og koli. Þarna var í reyndinni ágæt veiði og fiskurinn sem fékkst var hinn fallegasti. Við munum halda til veiða á ný á fimmtudag,“ segir Jón.

Deila: