Keilan í fyrirrúmi á línunni

Deila:

Línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK leggja nú alla áherslu á keiluveiðar. Páll Jónsson landaði 80 tonnum í Grindavík í gær og Sighvatur er að landa 65 tonnum í dag. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, segir að veiðarnar hafi gengið vel í Skerjadýpinu þar sem teknar voru fimm lagnir í túrnum.

„Keilan sem veiddist var hin fínasta og meðalþyngdin um þrjú kíló. Tvær lagnir gáfu 20 tonn hvor, sem þykir býsna gott. Við erum mjög sáttir við þessa veiði,“ segir Jónas Ingi.

Að sögn Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar, skipstjóra á Sighvati, er aflinn að þessu sinni nær eingöngu keila, auk nokkurs magns af löngu, keilubróður og karfa. Tvær fyrstu lagnirnar voru teknar í Jökuldýpinu og þrjár á Selvogsbankanum.

„Línan er lögð býsna djúpt eða á 700 metrum og jafnvel dýpra. Keilan sem fékkst er hin fallegasta. Nú skal lögð áhersla á keiluveiði og það þarf ávallt að gera á þessum árstíma. Nú er það keilan sem ræður ríkjum hjá okkur,“ segir Aðalsteinn Rúnar.

Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.

Deila: