Segir að ráðherra eigi að standa með starfsfólki Hvals

Deila:

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að atvinnuvegaráðherra eigi að standa með starfsfólki Hvals hf. og verja rétt þess til að stunda löglega atvinnu í stað þess að gagnrýna það. Þetta kemur fram í færslu hans á Facebook.

Vilhjálmur segir að hann ætli ekki að verja óviðeigandi framkomu einstakra starfsmanna Hvals og leggur áherslu á að dýrum eigi ávallt að sýna virðingu. Hins vegar telji hann að ekki megi láta einstök atvik varpa rýrð á heila atvinnugrein.

Hann gagnrýnir jafnframt atvinnuvegaráðherra fyrir að hafa, að hans mati, nýtt umræðuna til að ítreka eigin andstöðu við hvalveiðar án þess að fordæma þær hótanir og það áreiti sem starfsfólk Hvals hafi orðið fyrir af hálfu erlendra hvalaverndunarsinna.

„Skylda ráðherra er ekki aðeins að gagnrýna þegar eitthvað fer úrskeiðis heldur einnig að standa vörð um rétt fólks til að stunda löglega atvinnu sína í friði,“ skrifar Vilhjálmur.

Í færslunni bendir hann á að starfsfólk Hvals eigi, eins og aðrir landsmenn, stjórnarskrárvarinn rétt til atvinnufrelsis og að það eigi að geta sinnt störfum sínum án hótana, ofsókna eða tilrauna til að svipta það lífsviðurværi sínu.

Vilhjálmur segist telja að ráðherra eigi að fordæma með sama hætti hótanir og aðgerðir þeirra sem reyna að stöðva löglega atvinnustarfsemi. Hann segist jafnframt efast um að ráðherrann hefði brugðist með sama hætti ef um aðra atvinnugrein hefði verið að ræða.

Að lokum segir formaður Verkalýðsfélags Akraness að gera verði þá kröfu bæði til starfsmanna og stjórnvalda að þeir sýni fagmennsku. Að hans mati eigi ráðherra að vera „í fremstu víglínu“ við að verja rétt starfsfólks Hvals til að stunda löglega atvinnu sína.

Deila: