Samtök krefjast þess að MAST stöðvi veiðarnar

Deila:

Fern dýra- og náttúruverndarsamtök hafa krafið Matvælastofnun (MAST) um að stöðva hvalveiðar Hvals hf. tafarlaust og hefja ítarlega rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Dýraverndarsambands Íslands, Hvalavina, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð.

Samtökin segja kröfu sína byggja á sex eftirlitsskýrslum MAST frá 22.–26. júní sem þau fengu afhentar á grundvelli upplýsingalaga. Að þeirra mati benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum um velferð dýra, sem kveða á um að dýrum skuli ekki valdið ónauðsynlegri þjáningu og að aflífun fari fram með skjótum og sársaukalausum hætti.

Í yfirlýsingunni er meðal annars vísað til tilviks þar sem langreyð var sögð hafa átt í 31 mínútu dauðastríði eftir að hafa verið skotin fjórum sinnum. Þá nefna samtökin einnig endurtekin atvik þar sem fleiri en eitt skot hafi þurft til að aflífa hvali og að eftirlitsgögn hafi verið ófullnægjandi.

Af þessum sökum krefjast samtökin þess að MAST stöðvi tafarlaust frekari hvalveiðar á grundvelli núgildandi veiðileyfis Hvals hf., eða beini því til ráðuneytisins að leyfið verði fellt úr gildi á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Jafnframt vísa samtökin til þess að MAST stöðvaði hvalveiðar Hvals hf. tímabundið í september 2023 við sambærilegar aðstæður.

Deila: