Þriðjungur eftir af pottinum

Deila:

Ríflega tveir þriðju af strandveiðikvóta sumarsins hafa verið veiddir þegar tveimur af fjórum strandveiðimánuðum er lokið. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda þar sem farið er yfir stöðu strandveiða eftir lok annars 12 daga tímabilsins 30. júní.

Samkvæmt upplýsingum LS eru 4.732 tonn eftir af leyfilegum afla, sem jafngildir 35,4% af heildarviðmiðunaraflanum, en alls hafa veiðst 8.618 tonn af þorski. Þorskur er langstærsti hluti aflans og nemur 92,4% af heildaraflanum.

Alls hafa 782 bátar hafið strandveiðar á tímabilinu og landanir eru orðnar 13.534. Af þessum bátum reru 306 alla 12 veiðidagana í júní, samanborið við 113 báta í maí. Þá hafa 81 bátur nýtt alla 24 veiðidagana sem boðið hefur verið upp á það sem af er sumri.

Af töflu LS má sjá að svæði A er langaflahæsta strandveiðisvæðið með 4.795 tonna heildarafla, rúmlega helming alls strandveiðiaflans. Þar hafa einnig verið flestar landanir, eða 6.881. Svæði B kemur þar á eftir með 1.798 tonn, svæði D með 1.688 tonn og svæði C með 1.043 tonn.

Meðalafli á bát í þorskveiðum er hæstur á svæðum A og B, 12,2 tonn á bát, en lægstur á svæði D þar sem hann er 7,9 tonn. Dagsafli er einnig mestur á svæði A að jafnaði, 146 tonn, en minnstur á svæði C, 32 tonn.

Samkvæmt tölunum er meðalafli í hverjum róðri 637 kíló af þorski á landsvísu. Hæstur er hann á svæði B, 685 kíló, en lægstur á svæði D, 514 kíló.

Nú þegar tveimur mánuðum strandveiðitímabilsins er lokið standa því eftir rúm 4.700 tonn af leyfilegum afla sem veiðast mega í júlí og ágúst, samkvæmt upplýsingum Landssambands smábátaeigenda.

Deila: