Bandero á leið á slóðir hvalveiðiskipanna

Deila:

Paul Watson-samtökin greindu frá því á Facebook seint í gærkvöldi að skip samtakanna, Bandero, væri á leið á slóðir hvalveiðiskipanna eftir að hafa beðið af sér óveður.

Í færslunni segir að tvö síðustu hvalveiðiskip Hvals hf. í eigu Kristjáns Loftssonar hafi nú látið úr höfn og að Landhelgisgæslan sigli skammt á eftir þeim. Þá hvetja samtökin fylgjendur sína til að fylgjast áfram með framvindunni og vísa til aðgerðarinnar undir heitinu „Operation 86“.

Færslan kemur í kjölfar yfirlýsinga samtakanna um að markmið þeirra sé að trufla hvalveiðar við Ísland. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar lýst því yfir að gripið verði til aðgerða ef öryggi sjómanna eða annarra á sjó verði ógnað.

Ekki hefur komið fram af hálfu Landhelgisgæslunnar hvort Bandero sé komið á sjálfar veiðislóðir hvalveiðiskipanna, en gæslan hefur fylgst náið með ferðum skipsins undanfarna daga.

Deila: