Blængur með 417 milljóna túr

Frystitogarinn Blængur NK landaði 420 tonnum, eða um 14 þúsund kössum, í Neskaupstað í fyrradag að verðmæti um 417 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum á vef Síldarvinnslunnar. Þetta var enn einn aflatúr skipsins á árinu en samanlagt aflaverðmæti Blængs er nú komið yfir þrjá milljarða króna það sem af er ári.
„Þetta var þriggja vikna túr hjá okkur eða 21 dagur. Við vorum mest að veiðum á suðausturmiðum en veiddum þó í eina þrjá daga úti fyrir Vestfjörðum. Það var í reynd gott veður allan tímann. Aflinn var mjög blandaður í túrnum. Þó ekki sé ástæða til að kvarta þá mætti alveg vera meiri kraftur í veiðinni um þessar mundir en við getum þó ekki verið annað en ánægðir með útkomuna í veiðiferðinni. Hér um borð eru menn bara hressir og kátir,“ segir Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri í samtali við vef Síldarvinnslunnar.
Blængur heldur aftur til veiða í gærkvöld.
