Barði í viðgerð eftir eldsvoða

Heimasíða Síldarvinnslunnar greinir frá því að umfangsmiklar viðgerðir séu fram undan á frystitogaranum Barða NK eftir eld sem kom upp í vélarrúmi skipsins 12. júní þegar það var á leið til Neskaupstaðar að loknu viðhaldi og vélarupptekt í Færeyjum.
Áhöfninni tókst að kæfa eldinn en færeyskt varðskip dró skipið til hafnar í Þórshöfn, þar sem það hefur legið síðan. Samkvæmt Grétari Erni Sigfinnssyni rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar er enn unnið að því að meta umfang tjónsins, en ljóst sé að skemmdirnar séu verulegar.
„Fyrir liggur að skemmdirnar eru verulegar og nú er staðan sú að verið er að þrífa vélarrúmið eftir eldsvoðann og meta skemmdir. Ljóst er að tjón á köplum er umtalsvert og annað tjón einnig. Aðalvélin slapp nokkuð vel en þó þarf að skipta út einstökum hlutum hennar. Umfang tjónsins er að verða ljósara og nú er unnið að því að skipuleggja næstu skref. Fyrir liggur að fyrsti fasi viðgerðarinnar verður unninn í Færeyjum en óljósara er hvar unnið verður í framhaldinu. Við blasir að öll vinnan verður tímafrek og erfitt að meta nákvæmlega hve langan tíma tekur að sinna hverju verkefni. Ég held að það sé nokkuð ljóst að þessi vinna tekur bróðurpartinn af komandi hausti,“ segir Grétar.
Fyrsti áfangi viðgerðanna fer fram í Færeyjum en ekki hefur enn verið ákveðið hvar síðari hluti þeirra verður unninn. Miðað við núverandi stöðu málsins er ljóst að Barði NK verður frá veiðum stóran hluta haustsins.

