Fjölnir með 200 tonn í júní

Heimasíða Síldarvinnslunnar greinir frá því að krókabáturinn Fjölnir GK hafi verið á góðu skriði síðustu tvo mánuði og aflað um 380 tonna undan Austfjörðum. Báturinn hefur að mestu róið frá Neskaupstað á tímabilinu en er nú kominn í sumarstopp og fer í slipp í Njarðvík.
Kristinn Arnberg Kristinsson, annar skipstjóra Fjölnis GK, segir að veiðarnar hafi á heildina litið gengið vel þótt brælur hafi stundum sett strik í reikninginn.
„Á heildina litið gengu veiðarnar fyrir austan býsna vel en aflinn var þó misjafn í róðrunum og stundum voru brælur að stríða okkur. Við þurftum að fara býsna langt út frá Neskaupstað til að ná góðum árangri eða 30–40 mílur. Þarna fékkst gullfallegur fiskur og ekki undan neinu að kvarta. Við fengum um 480 tonn í maí og júní og af því fengust um 380 tonn fyrir austan og þar af rúmlega 200 tonn í júnímánuði. Það er ekki hægt að kvarta yfir svona veiði,“ segir Kristinn.
Fjölnir GK er í eigu Vísis í Grindavík, sem er hluti af Síldarvinnslusamstæðunni, og hefur verið gerður út frá Neskaupstað undanfarna tvo mánuði. Nú tekur við hefðbundið sumarstopp og verður báturinn tekinn í slipp í Njarðvík áður en veiðar hefjast á ný.