Hagrætt hjá Hampiðjunni

Samkvæmt frétt á vef Hampiðjunnar hefur fyrirtækið unnið að tveimur umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum á vormánuðum og fram á sumar. Annars vegar er verið að sameina tvö norsk dótturfélög í veiðarfæragerð og hins vegar framleiðslu og sölu á toghlerum innan samstæðunnar. Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar skili aukinni EBITDA-framlegð sem nemur um 1,2 milljónum evra þegar þær hafa komið að fullu til framkvæmda.
Í Noregi verður starfsemi félaganna Vonin Refa og Mørenot Fishery sameinuð undir nafninu Mørenot Refa. Samkvæmt Hampiðjunni hafa rekstrarskilyrði í veiðarfærageiranum versnað á undanförnum árum vegna samdráttar í veiðum á Barentshafsþorski í kjölfar kvótaniðurskurðar, banns við sölu veiðarfæra til rússneskra skipa og skerðinga á makríl- og kolmunnakvóta.
Með sameiningunni er stefnt að aukinni hagræðingu með samnýtingu starfsstöðva, lokun óarðbærrar starfsemi og markvissari nýtingu mannafla, án þess að þjónusta við viðskiptavini skerðist.
Jafnframt hefur Hampiðjan ákveðið að sameina framleiðslu og markaðsstarf tengt toghlerum. Þar verða tvö þekkt vörumerki samstæðunnar, Injector og Vónin-hlerar, rekin í sameiginlegu framleiðsluumhverfi í Plungė í Litháen. Framleiðslan verður öll sameinuð hjá Baltic Sea Steel, sem verður alfarið í eigu Vónin.
Injector-hlerar hafa verið framleiddir þar um árabil en Vónin-hlerar, sem meðal annars bjóða upp á fjarstýringu til að hámarka opnun trolls og stýra veiðidýpi, hafa hingað til verið framleiddir af undirverktaka. Hampiðjan segir að með sameiningunni verði til heildstæð vörulína sem þjóni ólíkum þörfum togveiðiskipa um leið og framlegð rekstrarins aukist.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að hagræðingaraðgerðirnar fari að skila sér á seinni hluta þessa árs en að megináhrifin komi fram á næsta ári.

