Leitað að fyrsta forstjóra Stofnunar atvinnuveganna

Deila:

Atvinnuvegaráðuneytið hefur auglýst embætti fyrsta forstjóra Stofnunar atvinnuveganna laust til umsóknar. Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að um sé að ræða nýja eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem tekur formlega til starfa 1. janúar 2027 og verður meðal annars ábyrg fyrir stjórnsýslu og eftirliti á sviði sjávarútvegs, fiskveiðistjórnunar, lagareldis og lax- og silungsveiði.

Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Jafnframt flytjast verkefni á sviði matvælaeftirlits frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til hinnar nýju stofnunar. Gert er ráð fyrir að þar starfi um 200 manns.

Samkvæmt auglýsingunni verður eitt af fyrstu og stærstu verkefnum hins nýja forstjóra að undirbúa starfsemi stofnunarinnar áður en ný lög taka gildi um næstu áramót. Forstjóri mun bera ábyrgð á rekstri, stefnumótun og faglegri starfsemi stofnunarinnar auk þess að leiða sameiningu þeirra stofnana sem mynda nýja embættið.

Markmið með stofnuninni er að efla opinbert eftirlit með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda, samræma stjórnsýslu og tryggja að fagþekking og ákvarðanataka haldist í heimabyggð um land allt.

Atvinnuvegaráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn. Umsóknarfrestur rennur út 4. ágúst og er stefnt að því að skipa í embættið á haustmánuðum þannig að nýr forstjóri geti undirbúið starfsemi stofnunarinnar áður en hún tekur til starfa 1. janúar 2027.

Deila: