Dómur staðfestir takmörkun ábyrgðar

Deila:

Héraðsdómur Suðurlands kvað þann 3. júlí upp dóm í skaðabótamáli vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 féll í sjóinn og olli skemmdum á leiðslunum.

Dómurinn sýknaði Vinnslustöðina hf. af öllum kröfum stefnenda og komst að þeirri niðurstöðu að félagið teldist ekki útgerðarmaður Hugins VE þrátt fyrir að eiga Huginn ehf. að fullu. Héraðsdómur taldi ekki sýnt fram á að Vinnslustöðin hefði farið með rekstur skipsins eða tekið þær ákvarðanir sem vörðuðu útgerð þess eða atvikið sem varð tilefni málsins.

Jafnframt staðfesti dómurinn að Huginn ehf. og VÍS tryggingum hf. væri heimilt að takmarka bótaábyrgð sína samkvæmt IX. kafla siglingalaga. Dómurinn taldi stefnendur ekki hafa sýnt fram á að stjórnendur Hugins ehf. hefðu sjálfir sýnt af sér stórfellt gáleysi eða ásetning sem gæti fellt niður rétt félagsins til takmörkunar ábyrgðar.

Í forsendum dómsins er meðal annars hafnað því að skortur á innleiðingu öryggishandbókar, fyrra atvik þar sem skipið missti akkeri eða meintir annmarkar á akkeriskeðju hafi verið nægjanlega sannaðir sem orsök tjónsins eða falið í sér stórfellt gáleysi stjórnenda Hugins ehf.

Í dómsorði er Vinnslustöðin sýknuð af öllum kröfum Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðarans ehf. Þá er viðurkennt að Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. hafi haft heimild til að takmarka ábyrgð sína samkvæmt siglingalögum og málskostnaður felldur niður.

Í tilkynningu Vinnslustöðvarinnar segir að félagið líti á dóminn sem mikilvægt skref í úrlausn málsins. Þar kemur jafnframt fram að um sé að ræða flókið og fordæmisgefandi mál og að félagið geri ráð fyrir að niðurstöðunni verði áfrýjað. Af þeim sökum hyggst útgerð Hugins VE ekki tjá sig frekar um efnisatriði málsins fyrr en endanleg niðurstaða liggur fyrir.

Deila: