Keiluveiðar Vísisskipa ganga áfram vel

Deila:

Samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar halda línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, áfram að veiða keilu með góðum árangri. Páll Jónsson landaði í Grindavík í gær með tæplega 100 tonna afla og Sighvatur er að landa þar í dag með um 60 tonn.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, segir veiðiferðina hafa gengið afar vel. Skipið tók sex lagnir á Heimsmeistarahrygg í blíðskaparveðri og var meirihluti aflans keila. Auk hennar var nokkuð af löngu, karfa, keilubróður og fleiri tegundum en þorskur var nánast enginn í aflanum.

„Þetta var sallafínn túr en hann var allur tekinn í himnablíðu úti á Heimsmeistarahrygg. Sex lagnir voru teknar í túrnum og var aflinn tæplega 100 tonn. Meirihluti aflans var keila, en einnig var nokkuð af löngu, karfa, keilubróður og fleiri tegundum. Það var nánast ekkert af þorski í aflanum. Keiluveiðin að undanförnu hefur gengið býsna vel og menn eru vel sáttir og kátir,“ segir Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, segir að aflinn sé um 60 tonn, þar af um 90% keila. Skipið tók fjórar lagnir, fyrst suður af Selvogsbanka, síðan suður af Surtsey, á Sneiðinni og loks í Háfadýpinu. Veðrið hafi verið gott mestallan tímann en hvesst undir lok túrsins.

Að lokinni þessari löndun fara bæði Páll Jónsson GK og Sighvatur GK í fimm vikna sumarstopp og að sögn skipstjóranna bíða áhafnirnar spenntar eftir kærkomnu sumarfríi.

Deila: