Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetninguna

Captain Paul Watson Foundation hefur heitið 250 þúsund króna greiðslu til þess sem getur veitt samtökunum rauntímaupplýsingar um staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals hf. Þetta kemur fram á Facebook-síðu samtakanna þar sem fullyrt er að Landhelgisgæsla Íslands geri þeim ókleift að hafa uppi á skipunum.
Í færslunni segir að skip samtakanna, Bandero, sé nú á eftirliti á þeim slóðum þar sem skip Kristjáns Loftssonar stundi hvalveiðar. Samtökin halda því hins vegar fram að Landhelgisgæslan miðli stöðugt staðsetningu þeirra, sem geri hvalveiðiskipunum kleift að forðast þau.
Af þeim sökum hafa samtökin ákveðið að bjóða 250 þúsund íslenskar krónur þeim sem geti veitt rauntímastaðsetningu hvalveiðiskipanna nógu snemma til að Bandero geti haft uppi á þeim.
Í lok færslunnar segja samtökin að markmið aðgerðanna, sem þau nefna „Operation 86“, sé að binda endi á atvinnuhvalveiðar við Ísland.

