Strandveiðiflotinn nálgast 10 þúsund tonnin

Deila:

Strandveiðiflotinn nálgast óðfluga 10 þúsund tonna markið í þorski (ÞÍG). Þegar þetta er skrifað hafa veiðst 9.800 tonn af þorski á vertíðinni samkvæmt tölum Fiskistofu. Hér er miðað við þorskígildistonn. 2.700 tonnum var bætt við pottinn á dögunum.

Aflahæstu bátarnir eru að nálgast 20 tonn í þorskafla (ÞÍG).

Alls hafa 15.192 landanir verið skráðar. Meðalafli flotans á dag er um 300 tonn. Að óbreyttu gætu um 10 veiðidagar verið eftir en strandveiðimenn binda vonir við að einhverjar viðbætur fáist á skiptimarkaði.

Athygli vekur að flotinn hefur landað 146 tonnum af umframafla. Þeir sem síst kunna sér magamál hafa landað yfir tonni af umframafla í þorskígildum talið. Það eru tveir bátar. Þrettán bátar hafa landað yfir 800 kílóum af umframafla, samkvæmt skráningu Fiskistofu.

Líkur á að umframafli fárra verði til þess að stytta vertíðina um einn dag fyrir alla fara því mjög vaxandi.

 

Deila: