Árni leitar makríls

Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lagði úr höfn í morgun í árlegan alþjóðlegan leiðangur sem hefur það meginmarkmið að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi. Frá þessu segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

Leiðangurinn er hluti af alþjóðlegu samstarfi þar sem einnig taka þátt rannsóknarskip frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Þetta er sautjánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í verkefninu.

Árni Friðriksson mun rannsaka hafsvæðin norðan, austan, sunnan og vestan Íslands, auk svæða í grænlenskri lögsögu norðan lands og við Jan Mayen. Samhliða stofnmælingum verður safnað gögnum um vistkerfi sjávar, meðal annars um frumframleiðni, ástand sjávar, magn og samsetningu átu.

Leiðangurinn stendur í 24 daga. Á þeim tíma mun skipið sigla tæplega 4.500 sjómílur, eða um 8.300 kílómetra, og taka 48 yfirborðstogstöðvar á fyrirfram ákveðnum staðsetningum. Um borð eru sex vísindamenn auk 17 manna áhafnar.

Niðurstöður leiðangursins verða teknar saman í sameiginlegri skýrslu sem lögð verður fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) síðsumars.

Deila: