Birtingur í sumarstopp

Heimasíða Síldarvinnslunnar greinir frá því að ísfisktogarinn Birtingur NK hafi landað um 50 tonnum í Grindavík í morgun eftir veiðiferð þar sem aflinn var að mestu karfi. Skipið fer nú í sumarstopp og heldur ekki til veiða á ný fyrr en eftir verslunarmannahelgi.
Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Birtingi NK, segir að veiðiferðin hafi hafist á Látragrunni, þaðan hafi skipið farið á Deildargrunn og loks út á Hala.
„Aflabrögðin voru ekkert sérstök en þetta voru 50 tonn þegar upp var staðið. Mest af aflanum var karfi en síðan voru þetta ýsa, þorskur og fleiri tegundir. Veðrið var ágætt þar til undir lokin en þá brast á sunnan fræsingur,“ segir Einar Ólafur.
Að lokinni löndun tekur Birtingur NK sumarfrí og verður frá veiðum fram yfir verslunarmannahelgi.