Eldur kviknaði í vélarrúmi Maggýjar VE

Deila:

Eldur kom upp í vélbátnum Maggý VE 108 þar sem báturinn lá við bryggju Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum á ellefta tímanum í morgun. Samkvæmt Eyjafréttum var allt slökkvi- og sjúkraflutningalið Vestmannaeyja kallað út, en slökkvistarf gekk greiðlega og fyrstu upplýsingar benda til að tjón sé takmarkað.

Eldurinn kviknaði í vélarrúmi bátsins og hafði slökkvilið fljótt tök á aðstæðum. Að slökkvistarfi loknu hófst reykræsting um borð.

„Við fengum tilkynningu um eld í báti og í ljós kom að um smávægilegan eld var að ræða í vélarrúminu. Búið er að slökkva eldinn og nú er verið að reykræsta. Tjón af völdum eldsins er væntanlega ekki mikið en erfitt er meta tjón af reyk á þessu stigi. Hjá okkur gekk allt samkvæmt áætlun, en við verðum alltaf að búa okkur undir það versta þegar eldur kemur upp í bátum og skipum,“ er haft eftir Gústaf Adolf Gústafsyni, varaslökkviliðsstjóra, í  Eyjafréttum.

Lögreglan hefur hafið rannsókn á eldsupptökum. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta var verið að ljúka framkvæmdum eftir vélaskipti þegar eldurinn kviknaði. Suðuvinna stóð þá yfir á millivegg milli lestar og vélarrúms og talið er að olía í vélarrúminu hafi tekið eld. Enginn var í hættu og engin slys urðu á fólki.

Maggý VE 108 er 113 brúttótonna stálskip, smíðað í Gdansk í Póllandi árið 1988. Skipið er tæplega 26 metra langt og gert út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum. Það hét áður Ósk og hefur um árabil verið gert út til dragnóta- og humarveiða.

Deila: