Fullfermi landað í Vestmannaeyjum

Deila:

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum á mánudaginn eftir vel heppnaða veiðiferð. Aflinn var að mestu ýsa en einnig ufsi, karfi og þorskur.

Í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar sagði Ragnar Waage Pálmason skipstjóri að mest hefði verið veitt á Pétursey, þar sem ýsuveiðin hefði verið mjög góð.

„Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi og einnig karfi. Á Pétursey var fínasta ýsuveiði og ýsan sem fékkst var stór og góð. Það var þokkalegasta veður í túrnum og segja má að hann hafi bara gengið vel,“ sagði Ragnar.

Bergey heldur aftur til veiða á föstudaginn og er þá fyrirhugaður stuttur karfatúr. Gert er ráð fyrir löndun næstkomandi mánudag en að því loknu fer skipið í sumarstopp.

Deila: