Bandero svaraði ekki kalli Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæslan hafði í gær samband við áhöfn Bandero, skips Captain Paul Watson Foundation, þegar eftirlitsflugvélin TF-SIF var á flugi yfir svæðinu þar sem skipið heldur sig. Frá þessu er greint á Vísi eftir upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.
Samkvæmt Magnúsi Pálmari Jónssyni, aðgerðarstjóra Landhelgisgæslunnar, var kallað til skipsins úr flugvélinni en engin svör bárust frá áhöfninni. Hann segir þó að það geti verið ýmsar skýringar á því og að slíkt sé ekki óvenjulegt þegar skip eru úti á hafi.
Þetta er í annað sinn frá því Bandero sneri aftur frá Írlandi sem Landhelgisgæslan hefur kallað á skipið. Í fyrra skiptið svaraði áhöfnin kallinu.
Á Facebook-síðu Captain Paul Watson Foundation kemur fram að áhöfn Bandero hafi reynt að komast nær hvalveiðiskipunum Hval 8 og Hval 9 en verið stöðvuð af Landhelgisgæslunni. Að sögn Magnúsar hefur Bandero hins vegar haldið sig suðvestur af landinu og ekki komist í námunda við hvalveiðiskipin.
Í færslu samtakanna segir jafnframt að Bandero muni halda sig utan 12 sjómílna landhelginnar þar sem áhöfnin óttist að Landhelgisgæslan muni annars hafa afskipti af skipinu. Bandero tekur þátt í svokallaðri Aðgerð 86, sem hefur það yfirlýsta markmið að stöðva atvinnuhvalveiðar við Ísland.


