Drónar taka við af flugvélum við talningu

Deila:

Hafrannsóknastofnun greinir frá því að í sumar verði í fyrsta sinn notaðir drónar við talningu landsela við strendur Íslands í stað flugvéla. Markmiðið er að meta stærð landselsstofnsins og fylgjast með breytingum á honum.

Talningin í ár nær til Faxaflóa annars vegar og Norðurlands vestra og Stranda hins vegar. Heildarstofnmat á landsel var fyrst framkvæmt árið 1980 þegar stofninn var metinn rúmlega 33 þúsund dýr. Síðasta heildarmat fór fram árið 2020 og þá var stofninn áætlaður rúmlega 10.300 dýr, sem jafngildir nærri 70% fækkun frá fyrsta mati. Af þeim sökum er íslenski landselsstofninn flokkaður sem „í hættu“ á válista íslenskra spendýrastofna.

Með innleiðingu dróna breytist framkvæmd talninganna. Ekki verður lengur hægt að telja alla strandlengjuna á einu ári heldur verða einstök strandsvæði tekin fyrir í áföngum og fyrri mælingar uppfærðar jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir að nýtt heildarstofnmat liggi því fyrir eftir nokkur ár.

Verkefnið er unnið af Hafrannsóknastofnun og Selsetri Íslands í samstarfi við drónafyrirtækið Svarma ehf.

Deila: