Blængur fiskaði fyrir 570 milljónir

Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í Neskaupstað í morgun með rúmlega 730 tonna afla að verðmæti tæplega 570 milljónir króna. Í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar segir Sigurður Hörður Kristjánsson skipstjóri að veiðiferðin hafi gengið vel.
Blængur hóf veiðar á grunnunum austan lands þar sem meðal annars var lögð áhersla á ýsuveiðar. Að því loknu var haldið á Vestfjarðamið þar sem ufsi var meginuppistaða aflans.
Sigurður Hörður segir að fyrstu dagarnir fyrir vestan hafi verið heldur erfiðir en aflabrögðin hafi tekið að glæðast þegar leið á túrinn.
„Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi gengið vel. Við byrjuðum á grunnunum fyrir austan land og þá var meðal annars lögð áhersla á ýsuveiði. Síðan var haldið á Vestfjarðamið og lögð áhersla á ufsa. Fyrstu dagana fyrir vestan var veiðin heldur treg en það rættist úr því þegar á leið. Ég held að við getum ekki kvartað eftir þennan túr,“ sagði Sigurður Hörður við heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Gert er ráð fyrir að Blængur NK haldi aftur til veiða annað kvöld.

