
Síldarvinnsluskipin Börkur NK, Beitir NK og Bjarni Ólafsson AK hafa nú veitt samtals 10.100 tonn af kolmunna í íslenskri lögsögu í júlímánuði. Beitir landaði 2.200 tonnum í Neskaupstað á þriðjudag og Bjarni Ólafsson kom þangað í morgun með 1.400 tonn.
Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, segir á vef Síldarvinnslunnar að veiðarnar hafi gengið vel. Hráefnið sem skipin hafi borið að landi sé af góðum gæðum og afurðirnar endurspegli það.
Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, segir að aflinn hafi fengist í sjö holum, þar sem dregið var í 9 til 20 klukkustundir og aflinn var á bilinu 200 til 500 tonn í holi. Veitt var fyrst í Rósagarðinum en síðan að mestu á Þórsbanka.
Hann segir áberandi mikið af makríl hafa sést á svæðinu. „Ég hef ekki séð svona makríllóðningar lengi. Nú verður farið að hyggja að makrílveiðum og þær eru alltaf spennandi,“ segir Ólafur.
Bjarni Ólafsson AK var nú í sínum fyrsta kolmunnatúr í rúm tvö ár. Skipið hefur legið í höfn frá loðnuvertíð 2024 en var nú gert út í stað Barða NK sem er í viðgerð eftir eld í vélarrúmi í júní.
Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni, segir að það hafi tekið sinn tíma að koma skipinu aftur í gang eftir langt hlé. Veðrið hafi einnig sett strik í reikninginn og tafið veiðarnar um heilan sólarhring. Þrátt fyrir það hafi aflinn fengist í sjö holum og hann geri ráð fyrir að skipið haldi áfram kolmunnaveiðum á næstu dögum.


