Gagnrýnir kvótaskipti Vinnslustöðvarinnar

Gunnar Sigurðsson, formaður VM, gagnrýnir harðlega ákvörðun Vinnslustöðvarinnar um að skipta makrílkvóta sínum fyrir þorskkvóta í pistli sem birtur hefur verið á heimasíðu VM. Hann segir ákvörðunina vekja upp alvarlegar spurningar um stöðu sjómanna sem starfa á uppsjávarskipum fyrirtækisins og byggja afkomu sína á hlutaskiptakerfinu.
Í pistlinum segir Gunnar að slíkar ákvarðanir geti haft veruleg áhrif á tekjur sjómanna án þess að þeir hafi nokkuð um þær að segja. Hann telur jafnframt tímabært að ræða hvort núverandi fyrirkomulag ráðstöfunar aflaheimilda og hlutaskiptakerfisins tryggi nægilega hagsmuni sjómanna.
Formaðurinn bendir einnig á að Vinnslustöðin hafi fjárfest í saltfiskvinnslu í Portúgal og segir eðlilegt að spurt sé hvaða áhrif aukin vinnsla erlendis geti haft á störf og atvinnuöryggi íslensks verkafólks.
Þá heldur Gunnar því fram að Vinnslustöðin greiði sjómönnum sínum lægra verð fyrir hráefni en margar aðrar útgerðir og vísar meðal annars til nýlegra loðnu- og kolmunnavertíða. Hann segir jafnframt að launaseðlar færeyskra sjómanna sýni að þeir fái hærri hlut en íslenskir sjómenn, þrátt fyrir að íslenskir útgerðarmenn hafi áður vísað slíkum samanburði á bug.
Að lokum segir Gunnar að öflug og arðbær sjávarútvegsfyrirtæki séu mikilvæg en að þau beri jafnframt ábyrgð gagnvart starfsfólki sínu og samfélaginu. Hann telur að auðlindin eigi að skapa verðmæti fyrir samfélagið allt, en ekki aðeins eigendur fyrirtækja.
