Skipverjar grunaðir um hættubrot

Deila:

Allir 21 áhafnarmeðlimir skipsins Bandero hafa stöðu grunaðs í rannsókn lögreglu vegna ætlaðra hættubrota sem áttu sér stað í tengslum við aðgerðir skipsins gagnvart hvalveiðiskipinu Hval 9. Þetta staðfesti Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, við Vísi.

Þrír úr áhöfninni, skipstjóri, fyrsti stýrimaður og fyrsti vélstjóri, voru teknir til skýrslutöku í dag en lögregla telur þá hafa borið mesta ábyrgð á aðgerðum skipsins. Bandero liggur nú í Sundahöfn þar sem áhöfnin dvelur um borð eftir að Landhelgisgæslan stöðvaði skipið í gærkvöldi.

Samkvæmt Ásgeiri snýr rannsóknin meðal annars að grun um að áhafnarmeðlimir hafi reynt að kasta netum og járn- eða vélahlutum í sjóinn með það að markmiði að festa þá í skrúfu Hvals 9.

„Ef það hefði tekist er mjög líklegt að skipið hefði orðið stjórnlaust úti á hafi. Það eru einhverjar hættulegustu aðstæður sem sjómenn geta lent í,“ sagði Ásgeir.

Lögregla rannsakar einnig möguleg brot á lögum vegna meintrar vanrækslu Bandero þegar kemur að því að hlusta á neyðarrás 16 og að hlíta fyrirmælum gæslunnar. Þá kemur einnig til skoðunar hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum almennra hegningarlaga um að tálma störfum þeirra sem fara með lögregluvald.

Ekki er talið líklegt að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir skipverjum. Þeim hefur hins vegar verið meinuð landganga og hefur lögregla sent Útlendingastofnun greinargerð þar sem óskað er eftir brottvísun áhafnarinnar með endurkomubanni.

Að sögn Ásgeirs eru 14 af 21 skipverja ekki ríkisborgarar Schengen-ríkja. Verði fallist á brottvísun gæti það þýtt tveggja ára endurkomubann inn á Schengen-svæðið.

Lögregla stefnir að því að ljúka bráðarannsókn málsins í kvöld, taka skýrslur af öllum skipverjum og afgreiða þau atriði sem nauðsynlegt er að ljúka á þessu stigi rannsóknarinnar.

Deila: