Miklar endurbætur fyrir makrílvertíð

Deila:

Lokahönd er nú lögð á umfangsmiklar framkvæmdir í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, þar sem unnið hefur verið að endurbótum á bæði starfsmannaaðstöðu og framleiðslubúnaði frá lokum loðnuvertíðar. Stefnt er að því að allt verði tilbúið þegar makrílvinnsla hefst, en hún gæti farið af stað strax í næstu viku. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar

Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar, rekstrarstjóra fiskiðjuversins, hafa fjölmargir iðnaðarmenn komið að framkvæmdunum. Starfsmannaaðstaðan tekur stakkaskiptum með nýju eldhúsi, stórum matsal og rúmgóðri setustofu sem eiga að bæta aðbúnað starfsfólks verulega.

Jafnframt hefur verið fjárfest í nýjum framleiðslubúnaði. Þar ber hæst uppsetningu nýrrar vacuumpökkunarlínu, aukinn sjálfvirkni við brettun, endurbætur á flokkunaraðstöðu og nýja afkastamikla pönnuþvottavél.

Geir Sigurpáll segir framkvæmdirnar hafa gengið vel og að starfsfólk hlakki til að hefja makrílvinnsluna á endurnýjuðu og öflugra fiskiðjuveri.

Deila: