Rúm 700 tonn eftir af pottinum

Aðeins eru um 740 tonn eftir í strandveiðipottinum. Þetta má sjá á gagnasíðu Fiskistofu. Að óbreyttu verða veiðarnar stöðvaðar í næstu viku en ekki verður veitt á mánudag, á frídegi verslunarmanna.
Landssamband smábátaeigenda fjallar um stöðu strandveiða á Facebook.
Að sögn LS hægði heldur á strandveiðum í júlí miðað við fyrri mánuði sumarsins. Alls stunduðu 708 bátar veiðar í júlí samanborið við 771 í júní. Frá upphafi strandveiðitímabilsins hafa alls 789 bátar tekið þátt í veiðunum.
Meðalþorskafli á dag í júlí var 220 tonn, sem er nokkru minna en í maí og júní. Í maí var meðalaflinn 264 tonn á dag og í júní 289 tonn, en meðaltalið fyrir allt tímabilið er nú 257 tonn á dag.
Þá fækkaði verulega þeim bátum sem náðu fullum 12 sóknardögum. Í júlí náðu 175 bátar því markmiði en í júní voru þeir 382.
Landssamband smábátaeigenda bendir jafnframt á að enn sé beðið eftir ákvörðun um hækkun viðmiðunarafla strandveiða. Tilboðsmarkaður Fiskistofu skilaði um þúsund tonnum meiri þorski en áætlað hafði verið og telur sambandið því svigrúm til að auka heimildir. Jafnframt hefur LS farið fram á að 100 tonnum af viðbótinni verði ráðstafað til línuívilnunar.

