Paul Watson, stofnandi Captain Paul Watson Foundation, segir að aðgerðir Bandero hafi náð meginmarkmiði sínu, þrátt fyrir að Landhelgisgæslan hafi stöðvað skipið og handtekið áhöfnina. Í viðtali við Vísi segir hann að tilgangurinn hafi verið að vekja alþjóðlega athygli á íslenskum hvalveiðum og að uppganga Landhelgisgæslunnar hafi í raun hjálpað til við það.
Watson segir að áhöfnin hafi gert ráð fyrir afskiptum gæslunnar þegar ákveðið var að stefna að Hvali 9. Hann hafnar því að aðgerðirnar hafi stefnt skipverjum í hættu og segir samtökin aldrei hafa ætlað sér að skaða fólk eða eignir.
Hann gagnrýnir jafnframt aðfarir Landhelgisgæslunnar og segir þær hafa verið „stórkarlalegar“, en viðurkennir um leið að myndefnið af uppgöngunni hafi verið verðmætt fyrir herferð samtakanna.
Að sögn Watson snýst baráttan fyrst og fremst um að ná alþjóðlegri fjölmiðlaumfjöllun en ekki að hafa áhrif á íslenskt almenningsálit. Hann segir þegar hafa veitt viðtöl við CNN og fjölmiðla víða um heim og telur að næsti áfangi verði að berjast fyrir málstaðnum fyrir dómstólum.