30 milljónir til hreinsunar strandlengjunnar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur úthlutað tæplega 30 milljónum króna til 18 verkefna sem miða að hreinsun strandlengju Íslands. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Alls bárust 24 umsóknir um styrki og nam heildarstyrkupphæðin 29.854.000 krónum. Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðaráætlunar ráðuneytisins í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins, sem hefur verið framlengd til ársins 2028.
Markmið styrkjanna er að stuðla að skipulegri hreinsun strandlengjunnar, viðhaldi á hreinsuðum svæðum, aukinni vitund almennings um mikilvægi strandhreinsana og að hvetja fleiri til þátttöku í slíkum verkefnum.
Hæsta styrkinn, 10.999.000 krónur, hlutu Veraldarvinir til hreinsunar á alls 510 kílómetra strandlengju. Strandhreinsun Íslands hlaut næsthæsta styrkinn, 4.160.000 krónur, fyrir hreinsun á 120 kílómetrum og Skeggi ehf. fékk 4.078.000 krónur til hreinsunar á 130 kílómetrum. Þá hlaut Ocean Missions 3.385.000 krónur til verkefnis sem nær yfir 75 kílómetra strandlengju og Blái herinn fékk 2.379.000 krónur til hreinsunar á 45 kílómetrum.
Alls hlutu 18 aðilar styrki að þessu sinni til strandhreinsunar víðs vegar um landið.
