Þúsund tonnum bætt við pottinn

Deila:

Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þetta er í annað sinn í sumar sem innviðaráðherra tilkynnir um aukningu strandveiðiafla en í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn.

Aukningin á rætur að rekja til niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða eru 5,3% af leyfðum heildarafla í hverri tegund dregin frá og þeim aflaheimildum ráðstafað til tiltekinna úrræða, þar á meðal strandveiða, byggðakvóta, línuívilnunar o.fl. Tegundasamsetning þess afla sem dreginn er frá svarar ekki alltaf til þeirra tegunda sem úrræðin kalla á og er ráðherra því heimilt að skipta aflamagninu í aðrar tegundir á skiptimarkaði.

Niðurstaða skiptimarkaðarins skilaði meiri þorskaflaheimildum en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun og nemur viðbótin tæpum 964 tonnum af óslægðum þorski.

Innviðaráðherra hefur ákveðið að ráðstafa þessari viðbót til strandveiða á yfirstandandi tímabili.

Deila: