Meiri þéttleiki makríls

Deila:

Bráðabirgðaniðurstöður úr árlegum uppsjávarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í Norðurhöfum benda til þess að þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu hafi verið meiri í sumar en árið 2025, þó hann sé enn minni en árin þar á undan. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk 24 daga leiðangri 30. júlí, en markmið hans var meðal annars að rannsaka útbreiðslu makríls, síldar og kolmunna. Makríll mældist á 21 af 34 yfirborðstogstöðvum, allar fyrir austan land eða sunnan Jan Mayen. Fiskurinn var stór, með 40 sentímetra meðallengd og rúmlega 600 gramma meðalþyngd.

Í leiðangrinum kom einnig í ljós óvenju mikil útbreiðsla kolmunna við Ísland. Kolmunni fannst við landgrunnsbrúnina austan, sunnan og vestan landsins, í svipuðum þéttleika og í fyrra en meiri en árin þar á undan.

Norsk-íslenska vorgotssíldin reyndist, líkt og undanfarin ár, að mestu vera fyrir norðan og austan landið.

Samkvæmt Hafrannsóknastofnun var yfirborðssjór fyrir norðan land og sunnan Jan Mayen hlýrri en sumarið 2025. Stofnunin telur að það geti skýrt hvers vegna meira mældist af bæði makríl og síld á þessum slóðum en í fyrra.

Endanlegar niðurstöður leiðangursins verða unnar í samstarfi við rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum og Danmörku og kynntar í september.

Deila: