Skipverjunum vísað á brott

Öllum áhafnarmeðlimum skipsins Bandero hefur verið birt ákvörðun um brottvísun frá Íslandi og endurkomubann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem Vísir greinir frá.
Skipverjarnir eru ekki lengur bundnir við skipið í Sundahöfn en sæta tilkynningarskyldu til lögreglu og mega aðeins dvelja innan höfuðborgarsvæðisins á meðan unnið er að framkvæmd brottvísunar. Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra sér um framkvæmdina.
Ákvörðunina má kæra til kærunefndar útlendingamála en kæra frestar ekki framkvæmd brottvísunar.
Fyrir ríkisborgara utan EES felur ákvörðunin í sér að lágmarki tveggja ára endurkomubann á allt Schengen-svæðið, en fyrir EES-borgara gildir endurkomubannið aðeins um Ísland.
Ekki liggur enn fyrir með hvaða hætti áhöfnin yfirgefur landið. Samkvæmt frétt Vísi er mögulegt að skipverjarnir fari annaðhvort með flugi eða sigli Bandero úr landi.
Bandero er þó enn kyrrsett eftir hafnarríkiseftirlit Samgöngustofu. Í eftirlitinu komu fram annmarkar, meðal annars skorti alþjóðlegt mælibréf og önnur lögbundin siglingargögn. Kyrrsetningunni verður ekki aflétt fyrr en útgerð skipsins hefur bætt úr þeim atriðum og skipið staðist nýja skoðun.
