Þrymur aflahæstur í þorski á strandveiðum

Fjórtán bátar lönduðu yfir 27 tonnum (ÞÍG) af þorski á nýliðinni strandveiðivertíð. Þrymur SK 72 var aflahæstur þeirra báta sem lönduðu 27 tonnum eða meira. Hann gerði út frá Skagaströnd. Alls landaði Þrymur 28,1 tonni af þorski í þorskígildum talið. Þetta má sjá á gagnasíðum Fiskistofu.
Kári BA 132 var næstur með 27,9 tonn og Sóley ÞH 28 þar á eftir með 27,8 tonn. Sif SH 132 landaði 27,7 tonnum og Lilja ÞH 21 27,6 tonnum.
Alls náðu 14 bátar 27 tonna markinu samkvæmt tölfræðinni. Flestir þeirra, eða sjö, gerðu út á svæði B. Þrír voru á svæði A, þrír á svæði C og einn á svæði D. Hafa verður í huga að hluti þessa afla reyndist vera umframafli, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Þannig landaði Þrymur, samkvæmt gögnum Fiskistofa, samtals rúmu tonni af umframafla í þorskígildum talið. Það gera að jafnaði 25 kíló í veiðiferð.
Auk Þryms voru Loftur HU 717, Blíðfari ÓF 70, Lukka EA 777, Fengur EA 207, Assa SK 15 og Sæbyr ST 25 meðal þeirra báta á svæði B sem náðu 27 tonna afla. Á svæði A voru Kári BA 132, Sif SH 132 og Erna ÍS 59, en á svæði C voru Sóley ÞH 28, Lilja ÞH 21 og Lundey ÞH 350. Birna SF 147 var eini báturinn á listanum sem gerði út á svæði D.
Landinu er skipt í fjögur löndunarsvæði vegna strandveiða og skipum er aðeins heimilt að landa afla innan síns svæðis.
Þegar heildarafli er skoðaður, afli með ufsa og öðrum tegundum, kemur í ljós að Hulda SF og Kalli SF voru aflahæstu bátarnir með 55 tonn af óslægðum afla.
