Keilan allsráðandi hjá Vísisskipunum

Deila:

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í Grindavík í vikunni eftir ágætis veiði. Páll Jónsson landaði 82 tonnum á mánudag og Sighvatur 60 tonnum í morgun. Keila var uppistaðan í afla beggja skipa.

Páll Jónsson fékk afla sinn í fjórum lögnum í Grindavíkurdýpinu. Hákon Valsson skipstjóri segir túrinn hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður í upphafi. Um hafi verið að ræða dæmigerðan skraptúr þar sem áhersla var lögð á keilu og löngu.

„Fiskurinn sem fékkst var fínn og meðalþyngd keilunnar yfir þrjú kíló sem er mjög gott,“ segir Hákon á vef Síldarvinnslunnar.

Á leiðinni á miðin tók áhöfn Páls Jónssonar jafnframt þátt í björgunaræfingu með Landhelgisgæslunni og þyrlunni TF-GRO. Hákon segir æfinguna hafa gengið afar vel.

Sighvatur fékk sín 60 tonn í fimm lögnum. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri segir aflann langmest hafa verið keilu en einnig hafi verið nokkuð af löngu, karfa og blálöngu. Veitt var á nokkuð stóru svæði, frá Melsekk og yfir í Jökuldýpiskant, Jökuldýpi og Jökuldýpistungu.

Þetta var síðasti túr Sighvats á yfirstandandi kvótaári og skipstjórarnir á báðum skipum horfa nú fram á nýtt fiskveiðiár með eftirvæntingu. Þá opnast á ný möguleikar á að beina sókninni í þorsk.

„Það er alltaf tilhlökkunarefni að hefja nýtt kvótaár og áhöfnin er spennt að geta snúið sér að blessuðum þorskinum á ný,“ segir Aðalsteinn Rúnar.

Deila: