Financial Times: Kjartan ræðir kosti og galla ESB

Deila:

Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti að sumu leyti haft jákvæð áhrif á íslenskan sjávarútveg en óttast um leið að Íslendingar missi stjórn á fiskveiðiauðlindinni. Rætt er við Kjartan í ítarlegri umfjöllun Financial Times um þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB, sem fram fer á laugardag.

Financial Times heimsótti Kjartan í Grundarfirði þar sem hann var nýkominn að landi eftir 14 tíma róður með um 550 kíló af þorski og ufsa, undir lok strandveiðitímabilsins. Sjávarútvegurinn er settur í forgrunn í umfjöllun blaðsins og sagður eitt viðkvæmasta málið sem bíði Íslendinga verði ákveðið að taka upp aðildarviðræður á ný.

Kjartan er gagnrýninn á þróun íslenska kvótakerfisins og þá samþjöppun aflaheimilda sem orðið hefur. Hann segir kerfið hafa skilað góðum efnahagslegum árangri en að þróunin hafi jafnframt komið illa niður á minni sjávarbyggðum.

Hann sér þó ekki aðild að ESB sem einfalda lausn á þeim vanda. Kjartan lýsir efasemdum um að færa ákvörðunarvald um íslenskar fiskveiðar til Brussel. Á sama tíma telur hann mögulegt að aðkoma ESB gæti skapað aukið aðhald og haft ákveðna kosti fyrir íslenskan sjávarútveg.

Sjávarútvegsmálin vega þungt í umfjöllun Financial Times. Blaðið bendir á að sjávarafurðir standi undir tæplega 40% af vöruútflutningi Íslands og að stjórn fiskveiða hafi lengi verið eitt stærsta ágreiningsefnið í samskiptum Íslands og ESB.

Deila: